Námskeið í notkun skjálestrar- og skjástækkunarbúnaðs fyrir vefsíðu BBÍ
Föstudaginn 27. janúar frá 18:00 til 19:00.
Hamrahlíð 17, 2. hæð (salnum).
Lena Dögg Dagbjartsdóttir sem sér um vefsíðu Blindrabókasafnsins verður á staðnum ásamt þeim Birki Gunnarssyni, starfsmanni safnsins og aðgengisfulltrúa Blindrafélagsins, og Hlyni Hreinssyni sérfræðingi frá Þjónustu- og Þekkingarmiðstöðinni
Ef þið eigið í vandræðum með að nota vef Blindrabókasafnsins til þess að panta bækur, hvort sem er á diski eða að hala þeim niður, komið á fundinn og fáið aðstoð og kennslu. Takið fartölvur eða annan aðgengisbúnað sem þið notið með ykkur ef þið getið. Á staðnum verða tölvur með Jaws og NVDA skjálesurunum.
Námskeiðið er aðallega ætlað til kennslu, en þeir sem hafa athugasemdir um síðuna almennt geta þó mætt og komið með athugasemdir sem hægt er að nota við frekari breytingar og uppfærslu heimasíðunar. Frekari upplýsingar er hægt að fá með því að senda póst á nefangið birkir@bbi.is
Vonumst til að sem flestir mæti.
Lena, Birkir og Hlynur.

