Hverjir geta orðið lánþegar?
Blindrabókasafnið er á fjárlögum ríkisins og hefur því takmarkað fjármagn til að veita prentleturshömluðum þjónustu sem ber að nýta sem best. Safnið starfar samkvæmt lögum sem segja að breyta megi prentuðu máli í aðgengilegt form fyrir þennan hóp eingöngu, þess vegna geta aðeins þeir sem sannanlega geta ekki nýtt sér prentað letur fengið hljóðbókaþjónustu. Þetta eru fyrst og fremst blindir, sjónskertir og lesblindir en ýmsar hamlanir og aðstæður geta þó veitt aðgang að safninu, til að mynda hreyfihömlun, geðfötlun, löng sjúkralega og þroskahömlun.
Þeir sem óska eftir þjónustu Blindrabókasafns þurfa því að vísa fram vottorði eða skriflegri staðfestingu frá lækni eða öðrum sérfræðingum, t.a.m. sálfræðingi eða sérkennara. Jafnframt er óskað eftir upplýstu samþykki frá nýjum lánþegum sem veitir safninu leyfi til að geyma persónuupplýsingar sem fylgja vottorðum. Upplýst samþykki má senda rafrænt.
Þeir sem gerast lánþegar með milligöngu Þjónustu- og þekkingarmiðstövar eða Blindrafélagsins og allir þeir sem eru orðnir 80 ára eða eldri þurfa þó ekki að framvísa vottorði.

