Hljóðbókasafn
Um safnið

Blindrabókasafn Íslands - hljóðbókasafn

Blindrabókasafn Íslands er ríkisstofnun sem heyrir undir mennta- og menningarmálaráðuneytið. Hlutverk safnsins samkvæmt lögum um Blindrabókasafn er að opna þeim sem ekki geta nýtt sér prentað letur aðgang að prentuðu máli á hljóðbók eða öðru aðgengilegu formi. Lánþegar safnsins eru því blindir, sjónskertir, lesblindir eða þeir sem vegna líkamlegra hamlana geta ekki nýtt sér hefðbundið prentletursform. Þeir sem hafa náð 80 ára aldri fá jafnframt aðgang að safninu án frekari skilyrða. Safnið framleiðir allar  námsbækur fyrir framhaldsskólanema í þessum hópi á hljóðbók eða rafrænu formi og leggur áherslu á þjónustu við lesblinda nemendur.  Árlega eru lesnar um það bil 300 hljóðbækur á safninu sem er um þriðjungur þeirra bóka sem koma út á íslensku. Jafnframt eru framleiddar enskar og danskar námsbækur með hjálp talgervilstækni og lánþegar safnsins geta auk þess fengið lánaðar hljóðbækur í gegnum millisafnalán við blindrabókasöfn á Norðurlöndunum.

Senda

 


Fyrirmyndarstofnanir 2011 - Minni stofnanir - 3. sæti
Þetta vefsvæði byggir á Eplica