Nemendur
Nemendur
Nemendur sem uppfylla skilyrði um aðgang að BBÍ geta nálgast fjölmargar námsbækur á safninu. Safnið framleiðir námsbækur fyrir framhaldsskólanema ásamt því að hafa milligöngu um millisafnalán frá hljóðbókasöfnum erlendis. Nemendur geta sjálfir halað niður námsefni af vef safnsins. Til þess þarf að nálgast aðgangsorð hjá safninu og skrifa undir upplýst samþykki. Hljóðbókunum farga nemendur eða eyða þeim eintökum sem þeir hafa halað niður af vefnum að notkun lokinni.
Grunnskólanemar sækja námsefni sitt hjá Námsgagnastofnun.

