Nýjar hljóðbækur
Kona þriggja eyja
Inga Dóra Björnsdóttir
Lengd bókar: 09:55 klst
Lesari: Þórey Sigþórsdóttir
Ása Guðmundsdóttir Wright var læknisdóttir úr Stykkishólmi sem hélt ung til Englands þar sem hún lærði hjúkrun, tók þátt í aðgerðum kvenréttindakvenna og saumaði sér kjól úr gardínuefni sem hún klæddist þegar hún gekk fyrir konung. Hún giftist breskum lögfræðingi og varð hefðarfrú í Cornwall. Þau hjónin fluttu úr gráma eftirstríðsáranna til Karíbahafseyjarinnar Trínidad og keyptu þar búgarð inni í frumskógi. Þar lifðu þau litríku lífi og spreyttu sig meðal annars á flóðsvínaræktun. Í ellinni stóð Ása að stofnun náttúruverndarsvæðis sem ber nafn hennar og er víðfrægt. Þrátt fyrir nær sextíu ára dvöl á framandi slóðum gleymdi hún aldrei uppruna sínum og gaf eigur sínar heim til Íslands að leiðarlokum. Saga Ásu er saga stórmerkrar konu sem ekki batt bagga sína sömu hnútum og samferðamenn og sat ekki alltaf á friðarstóli.

