Vetrarblóð
Kallentoft, Mons
- Þýðandi: Hjalti Rögnvaldsson
- Lesarar: Þórunn Hjartardóttir og Hafþór Ragnarsson
- 15 klukkustundir Á safn 2010
Það er grimmdarfrost – kaldasti febrúar í manna minnum. Lík manns finnst hangandi í eikartré á vindbarinni sléttu á Östergötlandi. Ummerkin á vettvangi minna á ævaforna heiðna fórnarsiði. Malin Fors, ungri lögreglukonu og einstæðri móður sem glímir við erfið vandamál í einkalífinu, er falið að rannsaka málið. Ásamt félögum sínum í lögreglunni í Linköping þarf hún að komast að því hver hinn látni er og af hverju hann endaði líf sitt hangandi í tré. Jafnframt þurfa þau að feta ískalda slóð morðinga – vegferð sem leiðir Malin Fors á vit myrkustu afkima mannlegs eðlis.

