Hljóðbókasafn
Hljóðbækur

Úrval af hljóðbókum

Mynd af manni með bók í eyraBlindrabókasafnið býður lánþegum sínum aðgang að tæplega 7000 titlum á hljóðbók. Kennir þar ýmissa grasa. Talsvert er til af sígildu efni svo sem bækur Halldórs Laxness, Þórbergs Þórðarsonar, Guðrúnar frá Lundi o.m.fl. Nýjar hljóðbækur koma út jöfnum höndum og margar þeirra eru tilbúnar til útláns á safninu á sama tíma og þær koma út á prenti. Þannig þurfa lánþegar ekki að bíða lengi eftir aðgangi að nýjum hljóðbókum. Hljóðbókalista má finna hér á vefnum en hér til hliðar er hægt að skoða nýjustu hljóðbækurnar, ábendingar um áhugavert efni og lesa nánar um ýmsa höfunda.



 


Fyrirmyndarstofnanir 2011 - Minni stofnanir - 3. sæti
Þetta vefsvæði byggir á Eplica