Nýjar barna- og unglingabækur
Græni atlasinn
Stephens, John
Lengd bókar: 12:16 klst
Þýðandi: Guðni Kolbeinsson
Lesari: Elín Gunnarsdóttir
Kate, Mikael og Emma reyna að bjarga fjölskyldu sinni en enda á því að þurfa að bjarga heiminum. Systkinin fara í hættulegt ferðalag um ókunnugar, hættulegar slóðir og um leið kynnast þau nýjum hliðum á sjálfum sér. Kata: Elst systkinanna og sú eina sem man eftir mömmu þeirra og pabba. Hún lofaði að vernda bróður sinn og systur þar til foreldrarnir kæmu aftur. Mikael: Horaður bókaormur sem er lagður í einelti á hverju munaðarleysingjaheimilinu á fætur öðru (gleraugun hans enda alltaf í klósettinu). Les helst bækur um töfra, sérstaklega ef dvergar koma við sögu. Emma: Smávaxinn slagsmálahundur. Elskar systkin sín en finnst Mikael stórfurðulegur. Slæst samt við alla sem halda því fram. Hefur laumast til að kasta gleraugunum hans í klósettið - tvisvar.
Saman komast þau að því að:
1. Töfrar eru til í raun og veru.
2. Emma kann að biðja kurteislega.
3. Þau ein geta bjargað heiminum. Númer 2 kemur mest á óvart.
Saman komast þau að því að:
1. Töfrar eru til í raun og veru.
2. Emma kann að biðja kurteislega.
3. Þau ein geta bjargað heiminum. Númer 2 kemur mest á óvart.

