Nýjar barna- og unglingabækur
Dæmisögur Esóps
Talið er að Esóp hafi búið í Grikklandi hinu forna á sjöttu öld f. Kr. Sumir halda að hann hafi verið þræll sem fengið hafi frelsi og verið ættaður frá eyjunni Samos. Fátt eitt er vitað um líf hans en hann virðist hafa verið hæfileikaríkur sagnamaður sem fengið gat áheyrendur sína til að veltast um úr hlátri. Þó að sögur hans séu þekktar undir nafninu „Dæmisögur Esóps“ eru margar þeirra eflaust eftir aðra sagnamenn sem lifðu löngu á undan honum.

