Nýjar barna- og unglingabækur
Hávamál
Þórarinn Eldjárn
Lengd bókar: 0:20 klst
Lesari: Þórunn Hjartardóttir
Gestaþáttur Hávamála geymir eldforna speki sem fylgt hefur norrænum mönnum öldum saman. Hér enduryrkir Þórarinn Eldjárn lífseig spakmæli Óðins í bók sem hentar allri fjölskyldunni, ekki síst yngstu meðlimunum. Í bókinni er fjallað um góða siði, hegðun og samskipti, og meðal annars lögð áhersla á að rækta vináttuna, meta gildi lífsins og huga að orðstír sínum. Þetta er forn lífsspeki en það er margt sem nútímamenn geta lært af henni og tilvalið fyrir fullorðna að rifja upp spekina með ungviðið sér við hlið.

