Nýjar barna- og unglingabækur
1. Markús Árelíus
Helgi Guðmundsson
- Lesari: Sif Ragnhildardóttir
- 8-11 ára
- 3.5 klukkustundir Á safn 2010
Söguhetjan er heimiliskötturinn Markús Árelíus sem býr í einlyftu timburhúsi ásamt hjónum og 12 ára dóttur þeirra. Markús Árelíus er ekki talinn mjög greindur, en nýtur hins vegar mikils sjálfræðis. Lýst er ýmsum uppátækjum hans.

