Hljóðbókasafn

Höfundur í nærmynd

Kristín Steinsdóttir

Kristín Steinsdóttir fæddist 11. mars 1946 á Seyðisfirði, hún er ein af okkar þekktu barnabókahöfundum á seinni árum. Hún hefur verið afkastamikill höfundur frá árinu 1987 og hafa bækur hennar almennt hlotið góðar viðtökur. Sögur hennar fjalla um allt milli himins og jarðar.
 

Kristín Helga Gunnarsdóttir

Kristín Helga Gunnarsdóttir er einn af vinsælustu barnabókahöfundum landsins. Hún er margverðlaunuð og það ekki að ástæðulausu því henni hefur tekist að hrífa með sér yngsta leshópinn jafnt sem þann eldri með galsafengnum frásögnum sem sækja efnistök sín bæði í samtímann og þjóðsagnaarf Íslendinga.

 

Guðrún Helgadóttir

Guðrún Helgadóttir fæddist í Hafnarfirði árið 1935 og ólst hún þar upp í stórum systkinahópi.

Hún starfaði sem ritari við Menntaskólann í Reykjavík frá 1957–1967 og sem deildarstjóri hjá Tryggingastofnun ríkisins frá 1973–1980. Guðrún var fulltrúi Alþýðubandalagsins í Borgarstjórn Reykjavíkur frá 1978–1982 og alþingismaður frá 1979–1995. Hún var forseti Alþingis 1988–1991, fyrst kvenna til að gegna því embætti.

 

 


Fyrirmyndarstofnanir 2011 - Minni stofnanir - 3. sæti
Þetta vefsvæði byggir á Eplica